Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Kim Kaufmann (48/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.

Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Kristen Gillman og Youngin Chun frá frá Bandaríkjunum sem deildu 13. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari, hver.

Það voru danska stúlkan Nanna Koertz Madsen og Kim Kaufmann frá Bandaríkjunum, sem deildu 11. sætinu, en báðar léku á samtals 2 undir pari. Nanna Koertz Madsen hefir þegar verið kynnt og í dag verður Kim Kaufmann kynnt.

Kim Kaufmann fæddist 16. agúst 1991 og er því 27 ára. Hún er frá Clark í S-Dakóta.

Kim byrjaði að spila golf 4 ára. Þjálfari hennar er Todd Kolb, en hann hefir þjálfað hana frá því hún var 6 ára.

Kim segir samt pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfferil sinn.

Meðal áhugamála Kim er matreiðsla, að fara á hljómleika, verja tíma með fjölskyldu, fara á aðra íþróttaviðburði og allt sem hefir að gera með Texas Tech.

Kim var nefnilega í bandaríska háskólagolfinu í Texas Tech University, en útskrifaðist þaðan 2013 með gráðu í stjórnmálafræði. Á háskólaárum sínum varð hún tvívegis All-American (2012 og 2013).

Kim hefir tvo sigra á Symetra Tour í beltinu þ.e. á Volvik Championship 2014 og Island Resort Championship árið 2013.

Kim hefir verið á LPGA frá árinu 2014 og er besti árangur hennar á LPGA frá upphafi T-2 árangur á Blue Bay LPGA árið 2015.

Árið 2018 spilaði Kim í 22 mótum á LPGA og náði niðurskurði í 9 mótum. Besti árangur hennar 2018 keppnistímabilið var T-23 árangur á LOTTE Championship presented by Hershey.

Hún fór því aftur í lokaúrtökumótið með þessum líka flotta árangri að verða T-11!!!! … og því spilar hún aftur á LPGA með fullum spilarétti 2019.