Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2019 | 23:30

PGA: Cabrera Bello efstur e. 1. dag Arnold Palmer Inv.

Það er Rafa Cabrera Bello, frá Kanaríeyjum, sem leiðir eftir 1. dag Arnold Palmer Invitational, sem er mót vikunnar á PGA Tour og stendur dagana 7.-10. mars 2019.

Rafa lék 1. hring á 7 undir pari, 65 höggum.

Í 2. sæti er Keegan Bradley 2 höggum á eftir á 5 undir pari, 67 höggum og síðan deila 5 kylfingar 3. sætinu,. á 4 undir pari, 68 höggum, en það eru: Phil Mickelson, Bubba Watson, Graeme McDowell, Patrick Rodgers og Billy Horschel.

Til þess að sjá stöðuna á Arnold Palmer Inv. SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Arnold Palmer Inv. SMELLIÐ HÉR: