Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Anne-Catherine Tanguay (51/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.

Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Kristen Gillman og Youngin Chun frá frá Bandaríkjunum sem deildu 13. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari, hver.

Það voru danska stúlkan Nanna Koertz Madsen og Kim Kaufmann frá Bandaríkjunum, sem deildu 11. sætinu, en báðar léku á samtals 2 undir pari. Becca Huffer varð ein í 10. sæti, en hún lék á samtals 3 undir pari. Allar framangreindar hafa verið kynntar.

Það voru kanadíski kylfingurinn Anne-Catherine Tanguay og bandaríski kylfingurinn Lauren Stephenson, sem deildu 8. sætinu en báðar léku þær á samtals 4 undir pari, á lokaúrtökumótinu, hvor. Stephenson hefir þegar verið kynnt og í dag er það Tanguay.

Anne-Catherine Tanguay fæddist 8. janúar 1991 og er því 28 ára. Hún byrjaði að spila golf 10 ára. Foreldrar Anne-Catherine eru Lucie Bellemare og Yvan Tanguay … Heimavöllurin heima í Quebec í Kanada er Royal Quebec.

Meðal helstu afreka Tanguay er að hún varð í 2. sæti bæði á Canadian Junior og Canadian Amateur mótunum.

Tanguay var í bandaríska háskólagolfinu; lék með University of Oklahoma í Bandaríkjunum, líkt og Eygló „okkar“ Myrra Óskarsdóttir GO, gerði á sínum tíma. Hér má sjá afrek Tanguay í bandaríska háskólagolfinu SMELLIÐ HÉR:

Það sem sérstaklega er vert að geta varðandi afrek Tanguay er að hún var með 2. besta meðaltalsskor í sögu skólans. Hún var einnig Honorable Mention All-American á lokaári sínu í háskóla 2014. Tanguay útskrifaðist frá Oklahoma háskóla með gráðu í viðskiptafræði.

Uppáhaldskylfingur Tanguay á LPGA er Paula Creamer og meðal helstu áhugamála hennar utan golfsins er að stunda yoga.

Fræðast má nánar um Anne-Catherine Tanguay á heimasíðu hennar með því að SMELLA HÉR: