Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2019 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Wes Roach (32/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, síðast var kynntur sá sem varð í 1. sæti peningalistans, Sungjae Im frá Suður-Kóreu.

Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Web.com Finals og hlutu þannig þáttökurétt á mótum PGA Tour. Fyrst var kynntur sá sem rétt slapp í hóp þeirra 25 efstu en það var Jim Knous, síðan Fabián Gómez frá Mexíkó, kanadíski kylfingurinn Ben Silverman, bandarísku kylfingarnir Michael Hayes Thompson og Cameron Tringale og nú síðast Sepp Straka frá Austurríki

Sá sem varð í 19. sæti á Web.com Tour Finals og sá sem kynntur verður í dag er Wes Roach.

Wes Roach fæddist 10. desember 1988 í Knoxville, Tennessee og er því 31 árs.

Roach er 1,9 m á hæð og 84 kg.

Hann var í Webb School of Knoxville og síðan lék Roach í bandaríska háskólagolfinu með liði Duke University.

Wes Roach á eina dóttur – Sage Catherine Roach – sjá mynd hér að neðan

Sage Catherine Roach ásamt foreldrum sínum PGA Tour kylfingnum Wes Roach og mömmu sinni, Söruh Roach.

Wes Roach útskrifaðist frá Duke 2011 með gráðu í félagsfræði. Roach gerðist atvinnumaður í golfi eftir útskrift árið 2011.

Ýmiss fróðleikur um Roach:

Þjálfarinn hans heitir Brad Rose.

Uppáhaldsgolfvellir hans eru The Honors Course (Chattanooga, Tennessee) og Pinehurst No. 2.

Hann ferðast aldrei án tölvunnar sinnar.

Roach er mikill aðdáandi Atlanta Braves.

Uppáhaldssjónvarpsþættirnir hans eru „Boardwalk Empire“ og „It’s Always Sunny in Philadelphia.“.

Roach finnst gaman að fylgjast með Derrick Rose í körfunni, og uppáhaldsfrístaðurinn hans er þar sem er sólarströnd. Hann tekur fram að hann hafi aldrei komið til New York.