Egill Ragnar Gunnarsson, GKG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 23. 2019 | 23:00

Bandaríska háskólagolfið: Egill Ragnar á besta skori í liði Georgia State e. 2. dag Furman Int.

Egill Ragnar Gunnarsson, GKG og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, Georgia State, taka þátt í Furman Intercollegiate mótinu, sem fram fer í Greenville, Suður-Karólínu, dagana 22.-24. mars 2019 og lýkur á morgun.

Þetta er stórt og sterkt mót; þátttakendur 120 frá 21 háskóla.

Eftir 2. dag er Egill Ragnar á besta skori liðs síns, líkt og á fyrsta degi og er sem stendur T-51; hefir spilað á samtals 7 yfir pari, 149 höggum (74 75).

Georgia State er í 18. sæti í liðakeppninni.

Sjá má stöðuna eftir 2. dag Furman Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: