Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 23. 2019 | 23:59

PGA: Casey leiðir f. lokahring Valspar Open

Enski kylfingurinn Paul Casey er í forystu fyrir lokahring Valspar Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour.

Casey er búinn að spila á samtals 9 undir pari, 204 höggum (70 66 68).

Á hæla Casey er Dustin Johnson (DJ) efsti maður heimslistans, aðeins 1 höggi á eftir.

Aðrir sem blanda sér í sigurbaráttuna eru bandaríski kylfingurinn Jason Kokrak, sem er í 3. sæti á samtals 7 undir pari og þeir sem deila 4. sætinu á samtals 6 undir pari, Luke Donald og Scott Stallings.

Til þess að sjá stöðuna á Valspar Open SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Valspar Open SMELLIÐ HÉR: