Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2019 | 01:00

LPGA: Ko sigraði á Founders Cup!

Það var Jin Young Ko frá S-Kóreu, sem sigraði á Bank of Hope Founders Cup, móti vikunnar á LPGA.

Sigurskor Ko var 22 undir pari, 266 högg (65 72 64 65).

Öðru sætinu deildu Korda-systurnar, Nelly og Jessica; spænski Solheim Cup kylfingurinn Carlota Ciganda og kínverska nýstirnið Yu Liu, allar 1 höggi á eftir, á samtals 21 undir pari, hver.

Mótið fór fram í Phoenix Arizona 21.-24. mars 2019.

Til þess að sjá lokastöðuna á Bank of Hope Founders Cup SMELLIÐ HÉR: