Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2019 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Stephan Jäger (36/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, síðast var kynntur sá sem varð í 1. sæti peningalistans, Sungjae Im frá Suður-Kóreu.

Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Web.com Finals og hlutu þannig þáttökurétt á mótum PGA Tour. Fyrst var kynntur sá sem rétt slapp í hóp þeirra 25 efstu en það var Jim Knous, síðan Fabián Gómez frá Mexíkó, kanadíski kylfingurinn Ben Silverman, bandarísku kylfingarnir Michael Hayes Thompson, Nicholas Lindheim, Wes Roach og Cameron Tringale, Curtis Luck (16. sæti) frá Ástralíu, Dylan Frittelli frá S-Afríku og Sepp Straka frá Austurríki.

Sá sem varð í 15. sæti á Web.com Tour Finals og sá sem kynntur verður í dag er Stephan Jäger, sem vann sér inn 69,923 dollara á Web.com Finals.

Stephan Jäger fæddist 30. maí 1989 í München í Þýskalandi.

Jäger er 1,75 m á hæð og 77 kg.

Jäger spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði The University of Tennessee at Chattanooga.

Hann hefir tekið þátt í Opna bandaríska risamótinu en þar náði hann ekki niðurskurði með skor upp á 74-80. Hann tók aftur þátt í Opna bandaríska 2017 og þar komst hann gegnum niðurskurð og varð T-60, sem er besti árangur hans í risamóti til þessa.

Jäger hefir sigrað 4 sinnum á Web.com Tour.

Árið 2016 á Ellie Mae Classic mótinu átti Jäger hring upp á 58 á 1. hring og fylgdi því eftir með hrigjum upp á 65-64-63 og vann þar með fyrsta Web.com Tour sigur sinn. Hann setti nýtt 72-holu met var á samtals 250 höggum og jafnaði  „to-par“ metið; var á samtals 30 undir pari og átti 7 högg á þann sem landaði 2. sætinu, Rhein Gibson. Hann setti líka 36 holu og 54 holu met. En þrátt fyrir sigurinn var Jäger í 28. sæti peningalistans og 3 sætum frá kortinu á PGA Tour.

Árið 2018 sigraði Jäger á Knoxville Open, sem var 4. Web.com Tour sigur hans. Þrátt fyrir að ná ekki að vera í hópi efstu 25 á peningalistanum náði hann kortinu sínu með því að vera meðal efstu 25 á Web.com Finals.