Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2019 | 22:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur & félagar í 2. sæti e. 1. dag Jane Weaver Inv.!!!

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar í Eastern Kentucky University (EKU) taka þátt í Murray State Jane Weaver Invitational.

Mótið sem stendur 5.-6. apríl 2019 á Miller Memorial golfvellinum í Murray, Kentucky er fremur stórt 98 þátttakendur frá 15 háskólum.

Eftir fyrri dag er Ragnhildur búin að spila á samtals 8 yfir pari, 152 höggum (75 77) og er á 3. besta skorinu í liði sínu!!!

Ragnhildur er sem stendur T-21 í einstaklingskeppninni en EKU  í 2. sæti í liðakeppninni. Þess mætti geta að liðsfélagi Ragnhildar, Elsa Moberly er efst í mótinu eftir fyrri dag þess. Glæsilegur árangur hjá EKU!!!

Fylgjast má með gengi Ragnhildar og félaga á Murray State Jane Weaver Invitational með því að SMELLA HÉR: