LET Access: Guðrún Brá rétt f. neðan niðurskurðarlínu e. 1. dag Terre Blanche mótsins!
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, hóf leik i gær, föstudaginn 5. apríl 2019, á Terre Blanche mótinu í Frakklandi. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
Guðrún Brá hóf leik kl. 14:28 á 10. teig á hinum glæsilega keppnisvelli Terre Blance í gær og lauk 1. hring á 75 höggum. Hún fékk 3 fugla, 3 skolla en því miður líka einn þrefaldan skolla.
Fylgjast má með gengi Guðrúnar Brár á skortöflu með því að SMELLA HÉR: en 2. hringur er þegar hafinn.
LET Access mótaröðin heldur upp á 10 ára afmæli sitt á þesu ári. Keppnisdagskrá mótaraðarinnar hefur aldrei verið stærri. Alls eru 20 mót á dagskrá, sem fram fara í 9 mismunandi löndum. Til samanburðar voru 13 mót á LET Access mótaröðinni í fyrra.
Heildarverðlaunafé á mótaröðinni hefur aldrei verið hærra á 10 ára ferli hennar. Samtals er keppt um 140 milljónir kr. en í fyrra var þessi upphæð um 81 milljón kr.
Nýbreytni verður gerð á þessu ári að úrslitakeppni fer fram í lok tímabilsins þar sem að 55 stigahæstu keppendurnir komast inn á „Road to La Largue“ lokamótið sem fram fer í Frakklandi 4.-6. október.
Fimm stighæstu keppendurnir á LET Access mótaröðinni komast beint inn á LET Evrópumótaröðina í lok tímabilsins. Keppendur í sætum 6.-20. komast beint inn á lokaúrtökumótið fyrir LET Evrópumótaröðina.
2019 LETAS keppnisdagskrá:
Apríl 5 – 7: Terre Blanche Ladies Open – Golf de Terre Blanche, Domaine de Terre Blanche, Frakkland (€40,000)
Maí 3 – 5: VP Bank Ladies Open – Gams-Werdenberg Golf Club, Sviss (€45,000)
Maí 15 – 17: Neuchatel Ladies Championship – Neuchatel Golf & Country Club, Saint-Blaise, Sviss (€40,000)
Maí 23 – 25: Jabra Ladies Open * – Golf Club de Evian, Evian-les-Bains, Frakkland (€150,000)
Maí 29 – 31: Lavaux Ladies Championship – Golf de Lavaux, Sviss (€50,000)
Júní 6 – 8: Viaplay Ladies Finnish Open – Messilä Golf, Lahti, Finnland (€40,000)
Júní 13 – 15: Skaftö Open – Skaftö Golf Club, Fiskebäckskil, Svíþjóð (€50,000)
Júní 20 – 22: Montauban Ladies Open – Golf de Montauban l’Estang, Montauban, Frakkland (€40,000)
Júní 27 – 29: Belfius Ladies Open – Cleydael Golf & Country Club, Aartselaar, Belgía (€40,000)
Júlí 4 – 7: Saint Malo Golf Open # – Saint Malo Golf Resort, Le Tronchet, Frakkland (€45,000)
Júlí 11 – 13: Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open – Augas Santas Balneario & Golf Resort, Spánn (€35,000)
Júlí 17 – 19: Santander Golf Tour LETAS Valencia – Club de Golf Escorpion, Betera, Spánn (€35,000)
Ágúst 1 – 3: Czech Ladies Challenge – Golf Resort Konopište, Tékkland (€35,000)
Ágúst 8 – 10: Anna Nordqvist Västerås Open – Västerås Golf Club, Västerås, Svíþjóð (€35,000)
Ágúst 14 – 16: Bossey Ladies Championship – Association du Golf & Country Club de Bossey, Frakkland (€40,000)
Ágúst 23 – 25: Tipsport Czech Ladies Open * – Golf Resort Karlštejn, Liten, Tékkland (€120,000)
Águst 29 – 31: Scandic PGA Championship – Allerum Golf Club, Helsingborg, Svíþjóð (€42,000)
Sept 12 – 14: WPGA International Challenge – Stoke by Nayland Hotel Golf & Spa, Leavenheath, England (€35,000)
Sept 25 – 28: Rügenwalder Mühle Ladies Open – Golf Club Am Meer, Bad Zwischenahn, Þýskaland (€40,000)
Okt. 4 – 6: La Largue Ladies Championship – Golf Club de LaLargue, Mooslargue, Frakkland (€80,000)
Aðalmyndagluggi: Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Frosti
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024