Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2019 | 10:00

LPGA: Ko sigraði á ANA Inspiration

Það var Jin Young Ko frá S-Kóreu, sem sigraði á 1. risamóti ársins í kvennagolfinu, ANA Inspiration.

Sigurskor Ko var 10 undir pari, 278 högg (69 – 71 – 68 – 70).

Í 2. sæti varð landa hennar Mi Hyang Lee, 3 höggum á eftir á samtals 7 undir pari, 281 höggi (70 – 73 – 68 – 70).

Í 3. sæti á samtals 6 undir pari, 282 höggum (69 – 72 – 74 – 67) varð síðan Lexi Thompson.

Til þess að sjá lokastöðuna á ANA Inspiration SMELLIÐ HÉR: