14/06/2015 European Challenge Tour 2015, KPMG Trophy, Golf de Piermont, Les Bons Villers, Belgium. 11-14 Jun. Jeff Winther of Denmark during the final round.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Jeff Winther (24/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.

Þeir, sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver, voru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke. Síðan varð franski kylfingurinn Romain Langasque einn í 5. sæti á samtals X undir pari. Þeir hafa allir verið kynntir.

Daninn Jeff Winther og bandaríski kylfingurinn Kurt Katayama, sem deildu 3. sætinu og síðan voru það Alejandro Cañizares frá Spáni og Zander Lombard frá S-Afríku sem deildu 1. sætinu. Í dag verður Jeff Winther kynntur.

Jeff Winther fæddist 30. mars 1988 og er því nýorðinn 31 árs.

Hann er 1,94 m á hæð og 82 kg.

Winther gerðist atvinnumaður í golfi 2012 eftir farsælan feril sem áhugamaður.

Hann vann fyrir sér sem golfvallarstarfsmaður í Nivå Golf í Kokkedahl, en þá var honum sagt upp í „hruninu.“ Atvinnuleysið leyfði honum að einbeita sér að fullu að leik sínum.

Winther reyndi fyrst fyrst fyrir sér á Nordic Golf League þar sem hann sigraði í aðeins 5. mótinu sem hann tók þátt í. Tveir sigrar árið eftir (2013) urðu síðan til þess að hann náði 3. sætinu á stigalistanum og komst á Áskorendamótaröð Evrópu (ens. Challenge Tour).

Árið 2015 komst hann í fyrsta sinn á Evróputúrinn eftir að hafa náð að landa 15. sætinu á peningalista Áskorendamótaraðarinnar og síðan hefir honum tekist að halda korti sínu 2016-2019, en hefir á hverju ári þurft að fara í Q-school.

Winther er áhugamaður um stangveiðar og tekur stöngina með sér um víða veröld í golfmótum.

Winther er sem stendur nr. 348 á heimslistanum.

Fræðast má nánar um Winther á heimasíðu hans með því að SMELLA HÉR: