DJ ósáttur við aðeins 1 risamótssigur
Nr. 2 á heimslistanum Dustin Johnson (DJ) segist ergilegur og vonsvikinn með að hafa aðeins 1 risamótssigur í beltinu, en telur sig hafa nægan tíma til þess að breyta þessu, t.a.m nú í ár á Masters risamótinu, sem hefst á morgun.
Hinum 34 ára Bandaríkjamanni var velt úr efsta sæti heimslistans í þessari viku af enska kylfingnum Justin Rose.
Eini risamótssigur DJ kom árið 2016 á Opna bandaríska.
Hann hefir 6 sinnum verið meðal efstu 5 í risamótum, þ.á.m. í 2. sæti á Opna breska 2011 og Opna bandaríska 2015 og var T-5 á PGA Chapionship 2010 eins og frægt er orðið eftir að víti sem hann hlaut fyrir að kylfuhaus hans snerti sand í sandglompu á 72. holu kostaði hann möguleikann á sigri.
„Ég myndi svo gjarnan vilja hafa unnið nokkra risatitla í viðbót. Ég átti nokkur góð tækifæri, sem mér tókst ekki að nýta,“ sagði DJ í viðtali fyrir Masters í gær.
„Vonsvikinn eða ergilegur, annaðhvort er OK til að lýsa tilfinningum mínum. En, ég meina, þetta er golf. Þessi leikur er mjög pirrandi og svekkjandi á stundum.“
„En ég er ánægður með feril minn til þessa. En mér finnst svo sannarlega að hann gæti hafa verið betri. En ég vonandi á enn langan tíma eftir á ferlinum.„
Árið 2017 var talið næsta öruggt að DJ myndi sigra á Masters, en hann er m.a. sá kylfingur með mestu högglengdina af teig á PGA Tour. Það ár datt DJ niður stiga í húsi sem hann var búinn að leigja og gerði þar með að engu sigurvonir hans. Kannski DJ nái loks nú í ár sigrinum, sem hann af mörgum er talinn hafa misst af vegna óhappsins 2017? Masters risamótið hefst á morgun 🙂
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024