Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Kurt Katayama (25/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.

Þeir, sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver, voru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke. Síðan varð franski kylfingurinn Romain Langasque einn í 5. sæti á samtals X undir pari. Þeir hafa allir verið kynntir.

Daninn Jeff Winther og bandaríski kylfingurinn Kurt Katayama  deildu 3. sætinu og síðan voru það Alejandro Cañizares frá Spáni og Zander Lombard frá S-Afríku sem deildu 1. sætinu. Jeff Winther hefir þegar verið kynntur og í dag er það Kurt Katayama.

Kurt Katayama fæddist 14. janúar 1993 í Chico, Kaliforníu og er því 26 ára ungur.

Hann er 1,7 m á hæð og 77 kg.

Hann lék í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Nevada í Las Vegas.

Katayama gerðist atvinnumaður í golfi árið 2015.

Hann spilaði aðallega á Web.com Tour árin 2016 og 2017 með litlum árangri og var m.a.nr. 1174 á heimslistanum í lok árs 2017.

Árið 2018 spilaði Katayama aðallega á Asíutúrnum og þar sigraði hann í einu móti PGM Darulaman Championship in Malaysia. Honum gekk vel á Asíutúrnum varð m.a. T-4 í  New Zealand Open, T-2 í Royal Cup og T-4 í Asia-Pacific Diamond Cup Golf, sem jafnframt taldi sem mót á Japan Golf Tour.

Í nóvember 2018 varð hann T-3 í Q-school Evróputúrsins og sigraði í aðeins 2. mótinu á Evróputúrnum þ.e. á AfrAsia Bank Mauritius Open, átti 2 högg á næsta keppanda. Þetta mót var í samstarfi við Sólskinstúrinn suður-afríska og Asíutúrinn. Með þessum sigri komst hann í fyrsta sinn meðal 200 efstu á heimslistanum. Í mars 2019 vann hann 2. mót sitt Oman Open, sem var 2. mótið sem hann sigrar í á Evróputúrnum, emð stuttu millibili.

Hann er einn af fáum Bandaríkjamönnum, sem spilar á Evróputúrnum og fetar þar með í fótspor manna á borð við Brooks Koepka.

Hann hefir því samtals þrívegis sigrað sem atvinnumaður í golfi, það sem af er árinu 2019.

Í dag (17. apríl 2019) er Katayama nr. 342 á heimslistanum.  Hann er svo sannarlega kylfingur sem vert er að fylgjast vel með!!!

Í aðalmyndaglugga: Katayama eftir sigurinn á AfrAsia Bank Mauritius Open