Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lúðvík Geirsson – 21. apríl 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Lúðvík Geirsson, fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði. Hann er fæddur 21. apríl 1959 og því 60 ára merkisafmæli í dag. Lúðvík er í Golfklúbbnum Keili og hefir spilað golf frá því hann var smástrákur. Sem strákur átti hann (og á eflaust enn) fínt golfsett, sem heill hópur af frábærum kylfingum naut góðs af þegar þeir voru að stíga sín fyrstu spor í golfinu, m.a Þórdís Geirs, margfaldur Íslandsmeistari, systir hans, sem laumaðist í settið hjá eldri bróður sínum, þegar hún var að byrja.

Lúðvík er kvæntur Hönnu Björk Lárusdóttur og á 3 syni: Lárus, f. 1984, Brynjar Hans f. 1989 og Guðlaug Bjarka f. 1996, en síðastnefndi sonur Lúðvíks, Guðlaugur Bjarki, var m.a. sigursæll á Áskorendamótaröð Íslandsbanka.

Komast má á Facebooksíðu afmæliskylfingsins hér til þess að óska honum til hamingju:

Lúðvík Geirsson

Lúðvík Geirsson – 60 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Karen Dale Lundqvist Eggeling 21. apríl 1954 (65 ára);  Michael Jonzon, 21. apríl 1972 (47 ára); Gassi Ólafsson, 21. apríl 1977 (42 ára); Róbert Þór Guðmundsson, lögreglumaður, 21. apríl 1980 (39 ára);  Virada Nirapathpongporn, 21. apríl 1982 (37 ára); Holmar Freyr Christiansson, 21. apríl 1983 (36 ára); Beatriz Recari, 21. apríl 1987 (32 árs); Hafliði Már Brynjarsson, 21. apríl 1993 (26 ára);  Bogi Ísak Bogason, GR , 21. apríl 1995 (24 árs) … og ….Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is