Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2019 | 12:00

Erica Herman – Kærasta Tiger

Á 18. flötinni á Augusta National á sunnudeginum á Masters naut Tiger Woods nokkurra tilfinningaþrunginna faðmlaga þeirra sem standa honum næst, syni hans, dóttur, móður …. og kærustu sinnar til 2 ára Ericu Herman.

Sjá má eldri grein Golf 1 um Ericu með því að SMELLA HÉR:  og eldri grein Golf 1 um Ericu á Rydernum 2018 með því að SMELLA HÉR:

Herman var í febrúar 2017 titluð aðalframkvæmdastjóra The Woods, tímabundins veitingastaðar á Genesis Open. Hin 33 ára Herman hafði þar áður starfað sem aðalframkvæmdastjóri veitingastaðar Tiger á Jupiter Island í Flórída, The Woods.

Herman hefir sótt fjölmörg PGA Tour mót auk liðakeppna s.s. Ryder bikarinn, þar sem Tiger hefir keppt á sl. árum og eins verið fylgdarkona Tiger á ýmsum uppákomum utan vallar.

Erica Herman var með fjölskyldu Tiger á 18. flötinni s.s. golfáhangendur, sem fylgdust með Masters, 2019 muna eftir og var þar í rauðum kjól með svartan hatt.

Hér má sjá nokkrar myndir af kærustu Tiger:

Tiger og Erica

Erica Herman, kærasta Tiger

Sam, Charlie, Erica og 2 aðrir fylgjast með Tiger

Erica og börn Tiger Woods, Sam og Charlie