Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2019 | 05:00

Bandaríska háskólagolfið: Tumi á besta skori WCU f. lokahring SoCon meistaramótsins

Tumi Hrafn Kúld, GA og félagar í Western Carolina University taka þátt í SoCon Championship, sem fram fer á Pinehurst nr.9 í Norður-Karólínu.

Þátttakendur eru 40 frá 8 háskólum.

Tumi er á besta skori WCU, er T-15 í mótinu á samtals 4 yfir pari, 148 höggum (76 72).

Farið er fögrum orðum um busann Kúld á heimasíðu WCU, sem sjá má með því að SMELLA HÉR: 

Lið WCU er í 8. sæti í liðakeppninni.

Sjá má stöðuna á SoCon Championship með því að SMELLA HÉR:

Lokahringurinn verður spilaður í kvöld.

Í aðalmyndaglugga: Tumi Hrafn Kúld. Mynd: WCU