Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2019 | 07:15

Bandaríska háskólagolfið: Jóhannes T-27 e. 1. dag Southland Conf. Championship

Jóhannes Guðmundsson, GR og félagar í Stephen F. Austin State University taka þátt í Southland Conference Championship.

Mótið fer fram dagana 22.-24. apríl 2019 í Stonebridge Ranch CC í McKinney, Texas.

Á 1. degi mótsins lék Jóhannes á 8 yfir pari, 80 höggum og er á 3. besta skori liðsfélaga sinna og T-27 í einstaklingskeppninni.

Lið Jóhannesar, Stephen F. Austin State University er T-7 í liðakeppninni.

Fylgjast má með gengi Jóhannesar og félaga með því að SMELLA HÉR: