Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2019 | 19:00

Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín & félagar spila í Auburn svæðismótinu

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Albany munu taka þátt í Auburn Regional of the NCAA Tournament í Opelika, Alabama.

Þetta er 2. árið í röð sem Albany tekur þátt í svæðismótinu og alls í 3 sinn í sögu skólans sem Albany keppir á mótinu.

Albany liðið tók í fyrsta sinn þátt í svæðismótinu árið 2015.

Þátttökurétt nú í ár öðlaðist Albany eftir að hafa sigrað í Metro Atlantic Athletic Conference Championship, í Lake Buena Vista í Flórída – Sjá  frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR: 

Svæðismótið í Auburn er 54 holu mót og fer fram í Saugahatchee Country Club dagana 6.-8. maí 2019.