Ólafía Þórunn Kristínsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2019 | 09:00

Ólafía Þórunn tryggði sér þátttökurétt á Opna bandaríska

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR, tryggði sér þátttökurétt í Opna bandaríska kvenrisamótinu.

Hún tók þátt í úrtökumóti fyrir risamótið, sem fram fór í Walnut Creek Golf Preserveve, í Westminster, Colorado, 6. maí sl.

Ólafía Þórunn átti tvo snildarhringi upp á 69 og 70 sem trggðu henni farseðilinn á risamótið, 1 höggi betri en Dottie Ardina, sem varð í 2. sæti. Um Dottie Ardina sjá eldri kynningu Golf 1 með því að SMELLA HÉR: 

Á facebook síðu sína skrifaði Ólafía Þórunn:

US OPEN here we come!! 🙌 69-70 for the ticket to Charleston SC. Walnut Creek is my new favorite course! Thanks to everyone who had anything to do with the qualifier. And the biggest thanks to my cutest caddie!!!

(Lausleg þýðing: „Hér komum við, Opna bandaríska!! 69-70 er farseðillinn til Charleston Suður-Karólínu. Walnut Creek er nýi uppáhaldsvöllurinn minn! Takk allir sem höfðu eitthvað með úrtökumótið að gera. Og stærstu þakkirnar til sætasta kaddýsins míns!!!“)

Sjá má lokaúrslitin í úrtökumótinu fyrir Opna bandaríska í kvennagolfinu með því að SMELLA HÉR: