Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Andri Jón, Arnór Ingi og Ásta Jóna – 9. maí 2019

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír: Andri Jón Sigurbjörnsson, Arnór Ingi Finnbjörnsson og Ásta Jóna Skúladóttir. Ásta Jóna er fædd 9. maí 1959 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Komast má á facebook síðu Ástu Jónu til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan

Ásta Jóna Skúladóttir (t.h.)

Ásta Jóna Skúladóttir – Innilega til hamingju með 60 ára afmælið!!!

GR-ingarnir Andri Jón og Arnór Ingi eru báðir fæddir 9. maí 1989 og eiga því 30 ára stórafmæli. Komast má á facebook síðu þeirra til þess að óska þeim til hamingju með stórafmælið hér að neðan.

Andri Jón Sigurbjörnsson

Andri Jón Sigurbjörnsson  – Innilega til hamingju með 30 ára afmælið!!!

Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR. Mynd: Golf 1

Arnór Ingi Finnbjörnsson – Innilega til hamingju með 30 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:

Harry Vardon, (f. 9. maí 1870 – d. 20. mars 1937); Betty Jameson, (9. maí 1919 – 7. febrúar 2009) (Hún var einn af stofnendum LPGA); Sam Adams, 9. maí 1946 (73 ára); John Mahaffey, 9. maí 1948 (71 árs); Guðmundur Ármann Pétursson 9. maí 1970 (49 ára); Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir, 9. maí 1972 (47 ára; ); Paul Maddy, 9. maí 1981 (38 ára); Sandra Gal, 9. maí 1985 (34 ára); Tvisturinn Vestmannaeyjum, 9. maí 1988 (31 árs) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is