Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2019 | 00:01

Evróputúrinn: Molinari meðal efstu 5 e. 1. dag á Made in Denmark

Edoardo Molinari, stóri bróðir hins sigursæla Francesco Molinari er einn af 5 sem deila efsta sætinu á móti vikunnar á Evróputúrnum, Made in Denmark presented by FREJA.

Hinir sem deila efsta sætinu með Edoardo eru: Englendingarnir Tom Murray, Paul Waring og Matthew Southgate og Alejandro Cañizares frá Spáni.

Allir hafa þeir spilað á 5 undir pari, 66 höggum.

Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti á Made in Denmark mótinu SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Made in Denmark SMELLIÐ HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Edoardo Molinari.