Brontë Law
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2019 | 18:00

LPGA: Brontë Law sigurvegari Pure Silk

Það var enski kylfingurinn Bronë Law, sem var sigurvegari Pure Silk Championship.

Sigurskor Law var santals 17 undir pari, 267 högg (65 – 68 – 67 – 67).

Law átti 2 högg á þær sem deildu 2. sætinu en það voru sænski kylfingurinn Madeleine Sagström og kanadíska golfstirnið Brooke Henderson, sem voru á samtals 15 undir pari.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurð; lék á samtals 8 yfir pari (73 77).

Til þess að sjá lokastöðuna á Pure Silk Championship SMELLIÐ HÉR: