Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2019 | 20:00

GLF: Lundsvöllur opnaði 25. maí sl.

Golfklúbburinn Lundur opnaði völl sinn fyrir kylfinga, laugardaginn 25. maí sl.

Völlurinn hefur komið, líkt og Jaðar, frábærlega undan vetri og hafa vallarstarfsmenn unnið hörðum höndum undanfarna daga við að hafa hann sem allra bestan.

Vonandi er að völlurinn verði frábær í sumar og með komu ganganna á umferð þar eflaust eftir að aukast.

Meðlimir GA spila völlinn frítt, og það er því upplagt fyrir þá að gera sér góðan dag og kíkja á þennan flotta 9 holu völl.

Völlurinn er jafnframt fyllilega ferðarinnar virði hvaðan sem er af landinu; ekki ónýtt að prófa þennan því golfvallarperlur leynast víða á Íslandi og er hér svo sannarlega um eina slíka að ræða!

Texti (að meginstefnu) og mynd: gagolf.is