Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2019 | 17:00

Evróputúrinn: Migliozzi sigraði á Belgian Knockout

Það var ítalski kylfingurinn Guido Migliozzi, sem sigraði á móti vikunnar á Evróputúrnum, Belgian Knockout.

Hann hafði betur í lokaviðureigninni í holukeppnishluta mótsins gegn hollendingnum Darius Van Driel.

Fyrir sigur sinn hlaut Migliozzi € 166,660. Migliozzi er ekki sá þekktast á Evróputúrnum og má sjá kynningu Golf 1 á honum með því að SMELLA HÉR: 

Mótið fór fram í Rinkven International golfklúbbnum í Antwerpen í Belgíu, dagana 30. maí – 2. júní og lauk því í dag.

Til þess að sjá lokastöðuna á Belgian Knockout SMELLIÐ HÉR: