Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2019 | 23:59

PGA: Cantlay sigraði á Memorial

Það var bandaríski kylfingurinn Patrick Cantlay, sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á PGA Tour, Memorial mótinu.

Sigurskor Cantlay var 19 undir pari, 269 högg (68 69 68 64). Það var glæsilokahringur Cantlay upp á 8 undir pari, 64 högg, sem færði honum sigurinn!

Í 2. sæti varð Adam Scott, 2 höggum á eftir á 17 undir pari, 271 höggi (71 66 66 68) og Martin Kaymer, sem var búinn að vera í forystu allt mótið varð að láta sér 3. sætið lynda en hann lék á samtals 15 undir pari, 273 höggum (67 68 66 72)

Sjá má lokastöðuna á Memorial mótinu með því að SMELLA HÉR: