Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2019 | 07:00

GM: Agnes Ingadóttir fékk ás!

Agnes Ingadóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar (GM) fór holu í höggi  þann 2. júní 2019 sl.

Höggið góða sló Agnes á 10. braut Hvaleyrarvallar.

Golf 1 óskar Agnesi til hamingju með ásinn!!!

Þess mætti geta að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Agnes fer holu í höggi en hún fékk fyrsta ás sinn á 1. braut heimavallarins, Hlíðarvelli, þegar hún var aðeins búin að vera 3 ár í golfi, á meistaramóti GKJ (nú GM) þann 13. júlí 2011.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Agnesi með því að SMELLA HÉR: