Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2019 | 05:00

Nordic Golf League: 3 íslenskir kylfingar hefja keppni á Thisted Forsikring í dag

Þrír íslenskir atvinnukylfingar verða með á næsta móti á Nordic Tour atvinnumótaröðinni, sem hefst í dag miðvikudaginn, 5. júní 2019.

Mótið heitir Thisted Forsikring og verða leiknir þrír keppnishringir.

Kylfingarnir þrír eru Axel Bóasson (GK), Haraldur Franklín Magnús (GR) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR).

Axel og Haraldur voru á meðal 10 efstu á síðasta móti á þessari mótaröð og Guðmundur Ágúst er á meðal þeirra efstu á stigalistanum.

Það er að miklu að keppa á Nordic Tour því fimm stigahæstu í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour).

Fylgjast má með íslensku kylfingunum á Thisted Forsikring á skortöflu með því að SMELLA HÉR: