Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2019 | 07:00

Steinn Auðunn sigraði í Læknamótinu

Læknamótið fór fram á Hvaleyrarvelli 31. maí sl.

Þátttakendur voru 23 læknar, þar af, eins og svo oft áður, því miður, aðeins 1 kona: Ásgerður Sverrisdóttir.

Væri gaman ef fleiri kvenkyns læknar tækju þátt, en Ásgerður heldur uppi heiðri kvenkylfinga meðal lækna!!!

Sigurvegari og á besta skori var Steinn Auðunn Jónsson, en hann lék Hvaleyrina á 81 höggi.

Keppnisfyrirkomulag var almennt og í punktakeppninni sigraði Hrafnkell Óskarsson, var með 34 punkta líkt og þeir Jón Þrándur Steinsson og Guðlaugur B. Sveinsson.  Hrafnkell var hins vegar með flesta punkta á seinni 9 eða 22; Jón Þrándur var með 19 punkta á seinni 9 og Guðlaugur með 17 punkta.

Í aðalmyndaglugga: Sigurvegari læknamótsins vorið 2019; Steinn Auðunn Jónsson.