Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2019 | 20:00

GA: Amanda holukeppnismeistari Norðurlands

Amanda Guðrún Bjarnadóttir, kylfingur úr GHD, stóð uppi sem sigurvegari í Norðurlandsmótinu í holukeppni sem fór fram á Jaðri um helgina. Í mótinu spiluðu 16 af forgjafarlægstu kylfingum norðurlands, þannig þetta er flott afrek hjá henni. Á leið sinni að titlinum hafði Amanda betur gegn Birni Auðunni, Bergi Rúnari, Sturlu Höskulds, og að lokum Karli Hannesi í úrslitaleiknum.

Úrslitaleikurinn réðist á 17. holunni og var það Húsvíkingurinn Karl Hannes Sigurðsson sem hreppti annað sætið. Bæði spiluðu þau flott golf yfir helgina og var úrslitaleikurinn sannarlega hnífjafn.

Í verðlaun fékk Amanda 72.000 krónur og titillinn holukeppnismeistari Norðurlands. Í heildina var þetta skemmtilegt mót sem verður vonandi bara enn stærra og flottara á komandi árum.

Helstu úrslit:

1. sæti Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD.

2. sæti Karl Hannes Sigurðsson, GH.

3-4. sæti Eyþór Hrafnar Ketilsson, GA.

3-4. sæti Sturla Höskuldsson, GA.