Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2019 | 23:59

PGA: Keegan Bradley efstur e. 1. hring RBC Canadian Open

Það er bandaríski kylfingurinn Keegan Bradley, sem leiðir eftir 1. hring RBC Canadian Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour.

Gaman að sjá Bradley aftur á toppi skortöflu en hann hefir ekki sést þar í nokkurn tíma!!!

Bradley lék 1. hringinn á 7 undir pari, 63 höggum.

Í 2. sæti eru hvorki fleiri né færri en 5 kylfingar: Shane Lowry frá Írlandi, Sungjae Im frá S-Kóreu; heimamaðurinn Nick Taylor; Erik Van Rooyen frá S-Afríku og Bandaríkjamaðurinn Roberto Castro, en allir léku þessir 5 kylfingar á 6 undir pari, 64 höggum!

Til þess að sjá stöðuna á RBC Canadian Open að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: 

Sjá má hápunkta 1. hring RBC Canadian Open með því að SMELLA HÉR: