Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 14. 2019 | 23:59

Opna bandaríska 2019: Gary Woodland leiðir í hálfleik

Það er bandaríski kylfingurinn Gary Woodland, sem tekið hefir forystuna á 3. risamóti ársins hjá körlunum, Opna bandaríska.

Samtals hefir Woodland spilað á 9 undir pari, 133 höggum (68 65).

Forystumaður 1. dags, Justin Rose er nú í 2. sæti á samtals 7 undir pari, 135 höggum (65 70) – 2 höggum á eftir Woodland.

Tiger, sem er meðal keppenda, komst í gegnum niðurskurð á sléttu pari, 142 höggum  (70 72) og er T-32.

Opna bandaríska nú í ár fer fram dagana 13.-16. júní 2019.

Til þess að sjá stöðuna á Opna bandaríska SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Opna bandaríska SMELLIÐ HÉR: