Ragnar Már Ríkharðsson, GM. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 14. 2019 | 22:00

Íslandsbankamótaröðin 2019 (3): Ljóst hverjir mætast í 16 manna úrslitum

Nú liggur fyrir hverjir mætast í 16 manna úrslitum á Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2019, en mótið er það 3. á Íslandsbankamóta- röðinni.

Mótið fer fram á Húsatóftavelli í Grindavík dagana 14.-16. júní 2019.

Sjá má öll úrslit með því að SMELLA HÉR :

Hér að neðan má sjá hverjir efstu 16 komust í holukeppnishluta mótsins, en á fyrsta degi var spilaður höggleikur:

Sá sem var á besta skorinu af öllum keppendum var Ragnar Már Ríkharðsson, GM, en hann er í flokki 19-21 árs og lék Húsatóftavöll á 4 undir pari, 66 glæsihöggum!!!

Best í öðrum flokkum voru:

Markús Marelsson GKG (flokkur 14 ára og yngri stráka) en hann var jafnframt á næstbesta skorinu yfir keppendur í heild, á 2 undir pari, 68 glæsihöggum!

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR var best í stelpuflokki (14 ára og yngri stelpna) lék á 5 yfir pari, 75 flottum höggum.

Dagur Fannar Ólafsson, GKG og Kjartan Sigurjón Kjartansson, GR léku best í drengjaflokki (15-16 ára) voru báðir á 2 yfir pari, 72 höggum.

Eva María Gestsdóttir, GKG lék best í telpuflokki (15-16 ára) og var einnig á besta skorinu af kvenkynskeppendum í mótinu þ.e. var á sléttu pari, 70 flottum höggum!!!

Tómas Eíríksson Hjaltested, GR var bestur í piltaflokki (17-18 ára) lék Húsatóftavöll á 1 undir pari, 69 glæsihöggum og var á 3. besta skorinu yfir alla keppendur.

Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA lék síðan best í stúlkuflokki (17-18 ára) var á 1 yfir pari, 71 flottum höggum!!!

Hér má sjá hverjir komust í 16/8 manna úrslit:

Stelpuflokkur 14 ára og yngri

Strákaflokkur 14 ára og yngri

Telpuflokkur 15-16 ára

Drengjaflokkur 15-16 ára

Stúlkur 17-18 ára

Piltar 17-18 ára

Piltar 19-21 árs

Í aðalmyndaglugga: Ragnar Már Ríkharðsson, GM. Mynd: Golf 1