Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2019 | 17:00

Íslandsbankamótaröðin 2019 (3): Eva María Íslandsmeistari í holukeppni í telpuflokki

Eva María Gestsdóttir, GKG er Íslandsmeistari í holukeppni 2019 í telpuflokki 15-16 ára.

Hún hafði betur í úrslitaviðureigninni við Nínu Margréti Valtýsdóttur, GR,  .

Katrín Sól Davíðsdóttir, GM varð síðan í 3. sæti en hún vann viðureignina um það sæti við klúbbfélaga sinn Maríu Eir Guðjónsdóttur .

Úrslitin í telpuflokki á Íslandsmeistaramóti unglinga í holukeppni 2019 eru því eftirfarandi:

1. sæti Eva María Gestsdóttir, GKG Íslandsmeistari.

2. sæti Nína Margrét Valtýsdóttir, GR

3. sæti Katrín Sól Davíðsdóttir, GM

4. sæti María Eir Guðjónsdóttir, GM

Mótið fór fram á Húsatóftavelli í Grindavík dagana 14.-16. júní 2019 og lauk því í dag.

Sjá má öll úrslit með því að SMELLA HÉR: