Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2019 | 20:00

Evróputúrinn: Pavan efstur e. 1. dag BMW Int. Open

Það er ítalski kylfingurinn Andrea Pavan, sem er efstur eftir 1. dag á móti vikunnar á Evróputúrnum, BMW International Open.

BMW Open fer fram í Golf Club München, Eichenried, í Münshen, Þýskalandi, dagana 20.-23. júní 2019. Ekki tókst að ljúka 1. hring vegna þrumuveðurs.

Pavan lék 1. hring á 6 undir pari, 66 glæsihöggum. Fast á hæla hans í 2. sæti eru heimamaðurinn Martin Kaymer og enski kylfingurinn Oliver Wilson á 5 undir pari, 67 höggum.

Sjá má stöðuna að öðru leyti á BMW International Open með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 1. dags á BMW International Open með því að SMELLA HÉR: