Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2019 | 08:00

Evróputúrinn: Smith efstur e. 3. dag BMW Int. Open

Það er tiltölulega óþekktur kylfingur, Jordan Smith, frá Englandi, sem er í efsta sæti á BMW International Open, eftir 3. keppnisdag, en mótið er mót vikunnar á Evróputúrnum.

Smith er búinn að spila á samtals 13 undir pari, 203 höggum (70 67 66).

Fast á hæla Smith, Í 2. sæti eru enski kylfingurinn Matthew Fitzpatrick, og Matthias Schwab frá Austurríki, báðir aðeins 1 höggi á eftir.

Sjá má stöðuna á BMW International Open með því að SMELLA HÉR:

Sjá má hápunkta 3. dags á BMW International Open með því að SMELLA HÉR: