Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2019 | 21:45

LPGA: Green sigraði á KPMG risamótinu!

Ástralski kylfingurinn Hannah Green var nú rétt í þessu að innsigla sigur sinn á 3. risamóti ársins hjá konunum, KPMG Women´s PGA Championship.

Hún var í forystu allt mótið og lét forystuna aldrei af hendi fyrir 1. risamótssigri sínum !

Sigurskor Green var 9 undir pari, 279 högg (68 69 70 72). Sjá má kynningu Golf 1 á Green með því að SMELLA HÉR: 

Fast á hæla Green var Sung Hyun Park frá S-Kóreu,  sem lék á samtals 8 undir pari, 280 höggum (70 71 71 68) og endaði í 2. sæti á risamótinu.

Þriðja sætinu deildu 3 kylfingar: enski kylfingurinn Mel Reid og Lizette Salas og Nelly Korda frá Bandaríkjunum, allar á samtals 6 undir pari, hver.  Reid átti ótrúlegan lokahring upp á 66 högg og var á lægsta skori allra þann hring.

Til þess að sjá lokastöðuna á KPMG Women´s PGA Championship í heild SMELLIÐ HÉR: