Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2019 | 11:00

Bjarki og Gísli hefja leik á EM áhugamanna í Austurríki

Bjarki Pétursson, GKB, og Gísli Sveinbergsson, GK eru á meðal keppenda á Evrópumóti einstaklinga sem hefst á miðvikudaginn í Austurríki.

Um er að ræða Evrópumeistaramót áhugakylfinga en keppt er á Diamond Country Club.

Bjarki hefur leik kl. 7:30 að íslenskum tíma á miðvikudaginn.
Gísli hefur leik kl. 12:20 að íslenskum tíma.

Stöðuna í mótinu má sjá með því að SMELLA HÉR: 

Bestu áhugakylfingar veraldar taka þátt á þessu móti en alls eru 144 keppendur. Kylfingarnir koma ekki bara frá Evrópu. Bandaríkin, Japan, Ástralía, Suður-Afríka og Nýja-Sjáland eru m.a. með keppendur á þessu móti.

Mótið er því gríðarlega sterkt og allir 144 keppendurnir eru í sætum 288 eða ofar á heimslista áhugakylfinga.

Sigurvegarinn fær boð um að taka þátt á Opna breska meistaramótinu – sem fram fer á Royal Portrush á Norður-Írlandi.

Að loknum 3. hring verður niðurskurður og þá komast 60 efstu áfram á lokahringinn.

Stöðuna í mótinu má sjá með því að SMELLA HÉR: 

Texti og mynd: GSÍ