Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2019 | 08:30

PGA: Doc Redman tryggði sér sæti á PGA og Opna breska!

Doc Redman varð í 2. sæti á Rocket Mortgage Classic mótinu, sem var mót s.l. viku á PGA Tour.

Hann var 6 höggum á eftir sigurvegaranum Nate Lashley, á samtals 19 undir pari, 269 höggum (68 67 67 67) og var einn í 2. sætinu.

Með þessum góða árangri tryggði hann sér sæti á PGA Tour sem og Opna breska risamótinu, aðeins 21 árs!!!

Doc Hudspeth Redman, eins og hann heitir fullu nafni, er fæddur 27. desember 1997 í Raleigh, Norður-Karólínu og lék áður með Clemson í bandaríska háskólagolfinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Rocket Mortgage Classic mótið er haldið og var mótsstaðurinn Detroit, Michigan og má sjá öll úrslit í mótinu með því að SMELLA HÉR: