Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2019 | 06:30

LPGA: Park sigraði í Arkansas

Það var Sung Hyun Park, frá S-Kóreu sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á LPGA; Wallmart NW Arkansas Championship Presented by P&G.

Sigurskor Park var 18 undir pari, 195 högg (66 – 63 – 66).

Sigurinn vannst á síðustu holu en þar var Park sterkust fékk fugl meðan helstu keppinautum hennar fataðist flugið með pari.

Í 2. sæti urðu Danielle Kang frá Bandaríkjunum og löndur Park; Hyo Joo Kim og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum Inbee Park, allar aðeins 1 höggi á eftir Sung Hyun. 

Mótið fór fram í Pinnacle CC í Rogers, Arkansas.

Sjá má lokastöðuna á Wallmart NW Arkansas Championship Presented by P&G með því að SMELLA HÉR: