Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 5. 2019 | 22:00

LPGA: Park efst – Ólafía úr leik e. 2. dag á Thornberry Creek Classic

Mót vikunnar á LPGA er Thornberry Creek Classic, sem fram fer í Oneida, Wisconsin.

Meðal keppenda var Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, sem því miður er úr leik; lék á 6 yfir pari, 150 höggum (74 76).

Efst í mótinu er nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Sung Hyun Park frá S-Kóreu, á samtals 17 undir pari, 127 höggum (65 62).

Sjá má stöðuna á Thornberry Creek Classic með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 2. dags á Thornberry Creek Classic með því að SMELLA HÉR: