Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2019 | 08:00

GÖ: Ásdís nýr rekstrarstjóri veitingasölu golfskálans

Golfklúbbur Öndverðarness samdi fyrr á árinu við Ásdísi Þrá Höskuldsdóttur um rekstur veitingasölu í golfskálanum að Öndverðarnesi.

Ásdís er kunnug veitingarekstri og virkur félagi í GÖ.

Hún hefir tekið við starfinu og er almenn ánægja með veitingasöluna og reksturinn, það sem af er sumars.

Ásdís tekur við hópabókunum og fyrirspurnum á netfangið gogolfbistro@gmail.com

Nú er um að gera að skella sér í Öndverðarnesið og taka hring – en völlurinn er virkilega góður …. og veitingarnar eftir á ekki síður!!