Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2019 | 07:00

Hver er kylfingurinn: Shane Lowry?

Shane Lowry sigraði á 148. Opna breska risamótinu, sem stóð 18.-21. júlí 2019 á Royal Portrush.

En hver er Lowry?

Shane Lowry fæddist 2. apríl 1987 í Mullingar, County Westmeath, á Írlandi og er því 32 ára. Shane er sonur írska knattspyrnumannsins Brendan Lowry. Shane er 1,85 m á hæð og 102 kg.

Hann er kvæntur Wendy Honner (2006) og saman eiga þau dótturina Írisi.

Besti árangur Lowry í risamóti fram að sigrinum í gær var T-2 árangur á Opna bandaríska 2016.

Aðrir stórsigrar hans eru sigur hans í Opna írska fyrir 10 árum (2009) meðan hann var enn áhugamaður og sigur á Bridgestone heimsmótinu 2015.

Lowry lærði að spila golf í Esker Hills golfklúbbnum, þar sem hann hóf áhugamannsferil sinn. Hann var í  Athlone Institute of Technology á styrk og lauk prófi þaðan með Higher Certificate in Sport and Recreation.

Lowry sigraði á Irish Amateur 2007 þar sem hann hafði betur gegn Niall Turner 4 & 3 í úrslitaviðureigninni. Meðan hann var enn áhugamaður 2009 sigraði hann á Opna írska, þ.e. vann Robert Rock á 3. holu í bráðabana. Með þessum sigri varð hann aðeins 3. áhugamaðurinn til þess að sigra í móti á Evróputúrnum. Hinir eru Danny Lee (2009) og Pablo Martín (2007). Lowry var í hörkustuði á mótinu lék m.a. á 62 sem er lægsta skor áhugamanns og var í forytstu frá 2. hring og til loka mótsins.

Með þessum sigri náði Lowry að verða nr. 6 á heimslista áhugamanna. Fyrirliði Walker Cup Colin Dagleish sagði sigurinn ævintýri líkastan (ens: fairytale stuff). Sigurinn var aðeins 2. sigurinn unninn af heimamanni, sá fyrsti vannst af Pádraig Harrington 2007.

Atvinnumannsferillinn

Lowry gerðist atvinnumaður í golfi viku eftir sigurinn á Opna írska, en með því fékk hann ekki að taka þátt í Walker Cup í september 2009 . Hann spilaði í fyrsta móti sínu sem atvinnumaður 28. maí 2009 á European Open, þar sem hann komst ekki í gegnum niðurskurð með skor upp á (78 73).

Lowry komst ekki í gegnum niðurskurð á fyrstu 3 mótum sínum sem atvinnumaður en fékk fyrsta tékkann 5. júlí 2009 þegar hann lauk keppni í 50. sæti á the Open de France ALSTOM. Besti árangur hans árið 2009 var 3. sætið á  Dunlop Phoenix Tournament í Japan. Í janúar 2010, varð Lowry í 4. sæti á Abu Dhabi Golf Championship, en með þeim árangri fór hann inn á topp-100 á heimslistanum.

Í júní 2010 lék Lowry í fyrsta risamóti sínu, Opna breska, sem þá var haldið á St. Andrews. Í mótinu jafnaði Lowry vallarmet Nick Faldo á Sunningdale þegar hann var með hring upp á 62 högg. Lowry náði niðurskurði og lauk keppni T-37.

Fyrsti sigur Lowry sem atvinnumanns kom 2012 á the Portugal Masters í október. Hann var á 67 og T-1 með Ross Fisher, sem fékk skolla eftir að ná ekki niður 1,5 m pútti. Sigurinn kom Lowry aftur meðal efstu 100 á heimslistanum, sem varð til þess að hann hlaut keppnisrétt á the WGC-HSBC Champions.

Árið 2014 var Lowry í 2. sæti á BMW PGA Championship í maí og síðar T-9 á Opna breska sem fór fram það ár í Royal Liverpool (Hoylake), en það var besti árangur hans til þess tíma í risamóti.

Í ágúst 2015 sigrðai Lowry á  WGC-Bridgestone Invitational í Bandaríkkjunum í Firestone,  Akron, Ohio, átti 2 högg á þann sem varð í 2. sæti þ.e. Bubba Watson. Lowry hlaut með sigrinum spilarétt á PGA Tour keppnistímabilið 2015–16.

Á Opna bandaríska 2016 í Oakmont Country Club nálægt Pittsburgh, var Lowry á 5 undir pari, 65 höggum á 3. hring og var samtals á 7 undir pari 203 höggum og átti 4 högg á Dustin Johnson og Andrew Landry fyrir lokahringinn. Þessi 65 högg voru besti hringur Lowry á risamóti til þess tíma. Vegna veðurs á fimmtudegi kláraðist 3. hringur ekki fyrr en snemma á sunnudeginum og Lowry náði fuglum á tveimur af 4 holum sem hann átti eftir að spila og átti því 4 högg á næsta mann fyrir lokahringinn. Á lokahringnum barðist hann um sigurinn, en fékk síðan ólukkans skolla á 14., 15. og 16. holurnar, sem bundu endi á sigurvonir hans. Hann lauk keppni T-2 með 76 á lokahringnum.

Lowry sigraði ekki á Evróputúrnum 2016-2018 en var T-2 á  DP World Tour Championship 2017 og í 2. sæti á  Andalucía Valderrama Masters 2018.

Nú á þessu ári, í janúar 2019, sigraði Lowry á Abu Dhabi HSBC Championship, átti 1 högg á Richard Sterne. Lowry var með 3 högga forystu fyrir lokahringinn.

Lowry deildi forystunni með JB Holmes (8 undir pari, hvor) í hálfleik á Opna breska 2019 á Royal Portrush eftir tvo glæsihringi upp á 67 högg. Lowry átti síðan 3. hring upp á 63, sem var nýtt vallarmet á Portrush og leiddi fyrir lokahringinn með 4 höggum. Hann sigraði síðan og átti 6 högg á þann sem varð í 2. sæti Tommy Fleetwood.