Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2019 | 07:00

Evían 2019: Risamótið hófst í morgun – FYLGIST M/HÉR:

Fyrsti hringur Evían risamótsins er hafinn í hinum gullfallega Evian Resort golfklúbb, í Evian-les-Bains, Frakklandi.

Eftir 2 sjóðandi heita daga í Ölpunum þá er búist við að hitinn fari aftur í 34° í dag.

Bandaríski kylfingurinn Jaye Marie Green var meðal þeirra sem hófu leikinn kl. 7.30am að staðartíma.

Meðal annarra sem fóru út snemma er sigurvegari South African Women’s Open 2019, Diksha Dagar frá Indlandi (sjá mynd í aðalmyndaglugga,) sem er að spila í sínu fyrsta risamóti, en hún var í 4. ráshópnum í dag.

Á eftir henni (kl. 8:14 a.m.) fóru út þær Mel Reid og Anne Van Dam, sem báðar eru að keppa um sæti í Solheim Cup liði Evrópu og Reid byrja vel … fékk fugl þegar á 1. holu!

Fylgjast má með stöðuna á Evían risamótinu með því að SMELLA HÉR: