Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2019 | 22:00

PGA: Rahm á 62 á 1. degi St. Jude

Það er Jon Rahm, sem tekið hefir forystuna á WGC FedEx St. Jude Invitational.

Hann lék 1. hring á stórglæsilegum 8 undir pari, 62 höggum.

Í 2. sæti eru 5 kylfingar: Shugo Imahira og Hideki Matsuyama frá Japan, Patrick Cantlay og Bubba Watson frá Bandaríkjunum og Cameron Smith frá Ástralíu.

Allir hafa þessir 5 í 2. sæti spilað á 5 undir pari, 65 höggum.

Sjá má stöðuna á St. Jude að öðru leyti með því að SMELLLA HÉR:

Sjá má hápunkta 1. dags á St. Jude með því að SMELLA HÉR: