Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2019 | 23:00

Evían 2019: 3 efstar e. 2. dag

Það eru þrír kylfingar frá S-Kóreu, sem eru efstar á Evían risamótinu í hálfleik.

Þetta eru þær: Hyo Joo Kim, Sung Hyun Park og Mi Hyang Lee, en þær hafa allar spilað á samtals 10 undir pari, 132 höggum.

Í 2. sæti, aðeins 1 höggi á eftr, þ.e. á samtals 9 undir pari, 133 höggum, eru enn tvær frá S-Kóreu þær Inbee Park og Jin Young Ko og Jennifer Kupcho frá Bandaríkjunum.

Sjá má hápunkta 2. dags á Evían risamótinu með því að SMELLA HÉR:

Sjá má stöðuna á Evían risamótinu með því að SMELLA HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Mi Hyang Lee