Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 18:00

Evróputúrinn: Slattery leiðir á Madrid Masters eftir 2. dag

Bretar eru búnir að hafa sætaskipti þegar Bankia Madrid Masters er hálfnað.

Fyrsta sætið vermir nú Englendingurinn Lee Slattery í stað McGowen sem var þar í gær. Hinn 33 ára gamli Slattery kom inn á 66 höggum og er þá samtals búinn að spila á 133 höggum (67 66);  -11 undir pari.  McGowen deilir  5. sætinu með Ástralanum Brett Rumford, fylgdi frábærum hring í gær upp á 64 högg eftir með hring í dag upp á 72 högg.

Öðru sætinu deila er Ítalinn Francesco Molinari og Spánverjinn Eduardo De La Riva, höggi á eftir Lee Slattery og í 4. sæti er Ítalinn Lorenzo Gagli.

Slattery náði ekki að endurnýja kortið sitt á Evrópumótaröðina 2007, aðeins munaði € 77 þá og nú í 136. sæti í Race to Dubai tekur á taugarnar að ná endurnýjuninni í þetta sinn.  Sigur í höfuðborg Spánar myndi binda endi á allar áhyggjur hans.

Slattery fékk 3 fugla á fyrri 9 og síðan glæsilegan fugl á 10. braut en því miður skolla á 12. braut.  Síðan setti Slattery niður fallegt 27 metra fuglapútt á 14. og náði síðan að setja niður 2 fugla í röð það sem eftir var hrings.

„Ég byrjaði vel, og var kominn 2 undir senmma og bara hélt þessu saman og lauk þessu vel, þegar ég náði fuglum á síðustu tveimur holunum,” sagði Slattery.

„Þetta snýst allt um að pútta vel. Ég púttaði vel í dag og fannst allt detta.”

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Madrid Masters smellið HÉR: