Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2019 | 21:00

Íslandsmót golfklúbba 2019: Leyniskonur tryggðu sér sæti í 1. deild!

Golflúbburinn Leynir fagnaði sigri í keppni í 2. deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba í dag.

Þrír klúbbar skráðu sig til keppni í þessari deild sem fram fór á Garðavelli á Akranesi.

Hópmynd af þátttakendum í 2. deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba 2019

 

Leynir sigraði eins og áður segir, Nesklúbburinn varð í öðru sæti og Golfklúbbur Fjallabyggðar endaði í þriðja sæti.

Leynir leikur því í 1. deild kvenna að ári á Íslandsmóti golfklúbba.

Sjá má öll úrslit í 2. deild kvenna með því að SMELLA HÉR: