Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2019 | 22:00

Evían 2019: Hyo Joo Kim í forystu e. 3. dag

Það er Hyo Joo Kim frá S-Kóreu, sem er í forystu á Evían risamótinu, fyrir lokahringinn, sem verður spilaður á morgun.

Hyo Joo er búin að spila á samtals 15 undir pari, 198 höggum (69 64 65).

Í 2. sæti, aðeins 1 höggi á eftir, á samtals 14 undir pari, eftir er landa hennar Sung Hyun Park,

Í 3. sæti eru síðan Jin Young Ko og Inbee Park, báðar á 11 undir pari, hvor.

Það eru því kylfingar frá S-Kóreu sem eru í 4 efstu sætunum á Evían!

Sjá má stöðuna á Evían risamótinu að öðru leyti með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 3. hrings á Evían með því að SMELLA HÉR: