Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 31. 2019 | 17:00

Hver er kylfingurinn: Jin Young Ko?

Sl. helgi sigraði Jin Young Ko (á kóreönsku: 고진영) frá S-Kóreu á 4. risamóti ársins hjá kvenkylfingunum, þ.e. á Evían risamótinu.

En hver er hún þessi Ko?

Jin Young Ko fæddist 7. júlí 1995 í S-Kóreu og er því nýorðin 24 ára.

Við 22 ára aldurinn hafði hún þegar sigraði í 10 skipti á kóreanska LPGA, þaðan sem einhverjir af bestu kylfingum heims koma; þannig að þá þegar var vitað að þarna væri á ferðinni mikið efni – Sjá eldri grein Golf 1 um Ko með því að SMELLA HÉR: 

Árið 2018 komst hún í fyrsta sinn á LPGA og þá var markmið hennar að verða nýliði ársins á LPGA, sem henni tókst! Enda var hún aðeins 2. í sögu LPGA til þess að vinna fyrsta mót sitt, sem nýliði á LPGA, en mótið sem Ko sigraði á var ISPS Handa Women’s Australian Open, 2018. Í þeim 25 mótum sem Ko spilaði á, á nýliðaári sínu á LPGA, 2018, varð hún 13 sinnum meðal efstu 10. Hún lauk 2018 keppnistímabilinu sem nr. 10 á Rolex-heimslista kvenna.

Nú í ár hefir Ko sigrað í 2 risamótum kvennagolfsins: ANA Inspiration og Evían risamótinu og er nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna.